25.9.2008 | 17:56
Næst-elsti eða elsti?
Fram kemur hinsvegar í tímaritinu Science að vísindamenn frá háskólanum í Montreal og við Carnegie stofnunina í Washington, sem hafa unnið að aldursgreiningu bergsins við Hudson Bay telji að það sé á bilinu 3,8-4,28 milljarða ára gamalt og þar með eldra en berggrunnurinn við Acasta Gneiss sem áður var talinn sá elsti í heimi. Hann er 4,3 milljarða ára gamall.
Vinsamlegast ákveðið ykkur áður en þið tilkynnið svona staðhæfingar. Ég nenni ekki að leita að upprunalegu fréttunum sem þið þýðið (með misjöfnum árangri) í hvert sinn sem þær birtast. Hin aðferðin væri að gera eins og aðrir góðir fjölmiðlar, að vísa í upprunalegu heimildirnar. Þið tapið engu á því.
Elsti hluti jarðar í Quebec | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.9.2008 | 15:26
Óborganlegt!
Agnes hefur m.a. kallað mig stórslys, en það er svo sem vægt til orða tekið um mig...
Árni fellur frá málssókn á hendur Agnesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.8.2008 | 23:33
Ótrúlegt!
Mér þykir það með ólíkindum að enginn skyldi slasast alvarlega í dag. Var á leiðinni til Akureyrar á þessum tíma, og við skötuhjúin biðum rúman klukkutíma áður en bílalestin byrjaði að mjakast áfram. Sáum svartan Benz, klesstan bílstjóramegin að framanverðu, og einhverja hvíta niðursuðudós, alla sundurtætta. Var þess fullviss að þarna hlyti að vera um banaslys að ræða. Ég veit ekki hvað hefur bjargað bílstjóra hvítu bifreiðarinnar.
Það er því léttir að ekki fór verr, því aðkoman var hreint út sagt hrikaleg.
Enginn alvarlega slasaður eftir bílslys | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.7.2008 | 20:09
Vegna Hinsegin daga?
Ætli það hafi ekki frekar verið vegna rányrkjunnar sem 365 Miðlar stunda? Grunnáskrift Stöðvar 2 eru kr. 5.590 skv. áskriftarvef þeirra. Fyrir hvað? Síendurteknar sápuóperur og kvikmyndir sem má fá á næstu myndbandaleigu fyrir 200 kr.
Ég er fjarri því að vera nokkur sjónvarpsunnandi, og skil því ómögulega "hægindi" þess að geta kveikt á imbanum og oltið inn í einhverja "spennandi" þáttaröð. Ef eitthvað slíkt myndefni vekur áhuga minn, þá kaupi ég það fremur á DVD safndiskum; e. t. v. 4.000 til 5.000 kr. fyrir heila þáttaröð. Sú þáttaröð tekur e. t. v. fjóra eða fimm mánuði í sýningum Stöðvar 2, sem jafngildir þá fjórfalt þeirri upphæð og rúmlega það.
Vil þó ekki gera lítið úr þeim er njóta þessarar áskriftar. Vissulega má finna þarna fleira en þáttaraðir og almenna dægrastyttingu (tel almennar fréttir ekki með, því þær má allar nálgast á veraldarvefnum núorðið. En fyrr skal ég dauður liggja...
Hótunarbréf vegna gleðigöngu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.7.2008 | 08:22
Því miður?
Þannig er að finna stórskemmtilegt viðtal við Mugison á tónlistarvefsíðunni Backstage Pass þar sem blaðamaðurinn Katie Spain (sem er því miður frá Ástralíu) fer yfir víðan völl með tónlistarmanninum.
Kappinn hefur skopskyn, sem er vel. En hvers vegna í ósköpunum þykir blaðamanni Morgunblaðsins uppruni Katie svo miður? Er slæmt að vera ástralskur, eða finnst honum leitt að hún starfi ekki fyrir Morgunblaðið á Íslandi?
Huldumaður kenndi Mugison allt um listina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.7.2008 | 11:40
Kjúklingur og franskar
Með þessu áframhaldi mun ekki líða á löngu þar til götur borgarinnar muni ilma eins og skyndibitastaðirnir. ;)
Fyrir fáeinum árum heyrði ég eða las um tvo kana sem ferðuðust yfir Bandaríkin þver á díselbifreið. Þeir stoppuðu einmitt við alla skyndibitastaði til að fá úrgangsfitu til að setja á bílinn. Eftir á kvörtuðu þeir sáran undan lyktinni sem var einna líkust frönskum kartöflum.
Fita endurnýtt sem eldsneyti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.6.2008 | 11:18
Ljómandi!
Ég fagna því að samið var um hækkun í krónum talið en ekki prósentum. Þannig fá allir að njóta, ekki síst þeir sem hafa lægri laun. Eins er ég ánægður að samið var til skemmri tíma, einkum miðað við núverandi ástand í fjármálaheiminum.
Þá er bara að bíða eftir að eldsneytið lækki...
Samningur samþykktur í stjórnarráðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.6.2008 | 22:13
Moonwalk?
Michael Jackson tryggði Þrótti sigur í Árbænum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.5.2008 | 08:52
Ex in the city?
Ekkert „sex“ í borginni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2008 | 15:37
Bjúghverfill?
Rétt að athuga hvort að aðgangurinn minn sé enn virkur sökum notkunarleysis.
Doi kastaði búmeranginu - eða bjúghverflinum, eins og það hefur verið nefnt á íslensku - og varð mjög hissa á að sjá að það flaug nákvæmlega eins og það gerir á jörðinni, sagði Doi er hann ræddi við konuna sína utan úr geimnum.
Orðið bjúghverfill hef ég aldrei heyrt áður, en bjúgverpill er meira að mínu skapi.
Gleðilega hátíð!
Búmerang virkar úti í geimnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)